Sterkir Skagamenn er skemmtilegur félagsskapur sem hefur það að meginmarkmiði að vera kröftugur fjárhagslegur og félagslegur stuðningsaðili og bakhjarl KFÍA. Árgjald félagsins er kr. 100.000,- , eða 8.500 kr. á mánuði, sem að öllu leyti er ráðstafað til stjórnar KFÍA. Innifalið í árgjaldinu er miði á alla leiki meistaraflokks karla og kvenna, þar sem hver félagsmaður getur boðið með sér einum gesti. Þá mun félagsskapurinn standa fyrir móttökum fyrir leiki á Íslandsmóti og fleiri viðburðum sem ræðst af vilja félagsmanna.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í félagsskapnum er bent á að senda tölvupóst á sterkirskagamenn@kfia.is, senda skilaboð á Facebook síðu félagsins, smella á hlekkina hér að neðan.
Smelltu hér til að ganga í félagsskapinn með fjölgreiðslu.
Smelltu hér til að ganga í félagsskapinn gegn eingreiðslu.
Einnig er hægt að hafa samband við stjórnarmenn félagsins sem eru í dag:
Dýrfinna Torfadóttir
Haraldur Ingólfsson
Jón Gunnlaugsson
Magnús D Brandsson
Örn Gunnarsson